Nóvember nótt
Þetta gæti litið út frekar einmanalegt, en málið er að það er það nefnilega alls ekki.
Jú ég væri frekar til í að hafa Billa hjá mér og vera að kósa okkur fyrir framan einhverja mynd, en í staðinn sit ég hér ein uppi í sófa, vafin sæng, með jólaöl á borðinu, tölvuna við hliðina á mér og stílabókina í fanginu og er að læra anatómíu. Þetta er bara hreint ekki sem verst, og ekki skemmir fyrir öll kertin sem er kveikt á. Það er nauðsynlegt að vera stundum einn með sjálfum sér. Ég er búin að ákveða að ég ætla að klára kaflann sem að ég er í, fara í heita sturtu og leggjast upp í rúm að lesa bókina sem er á náttborðinu hjá mér. Þetta hljómar kósí og ég hlakka mikið til. Ég mæli með því að allir taki sér allavega eitt til tvö kvöld í mánuði með einungis ykkur sjálfum og notið þann tíma til þess að gera eitthvað sem að ykkur finnst skemmtilegt og sem að hlúir að ykkur sjálfum. Mér finnst það að minnsta kosti voðalega gott. Þetta er orðið kannski frekar væmið innlegg hjá mér, en hvað um það.

Jólin nálgast óðfluga. Mér finnst eiginlega klukkan slá korter í jól! Af hverju getur þetta ekki verið eins og þegar maður var lítill? Tíminn fram að jólum var alltaf eeendalaust lengi að líða og maður iðaði af spenningi hvern einasta dag til þess að athuga hvað maður hefði fengið í skóinn. Svona er þetta ekki lengur. Ég er að vísu mikið jólabarn og hlakka alveg hrikalega mikið til jólanna en mér finnst ég ekki geta leyft mér að hlakka til þeirra fyrr en eftir próf. Þá ætla ég sko að gera mikið. Eftir prófin ætla ég að baka a.m.k. 3 smákökusortir, helst fleiri. Dunda mér við að skrifa á jólakort. Skreyta íbúðina okkar..nei ég hugsa að ég geri það nú bara þarna í byrjun desember. Hlusta mikið á jólalög. Ganga niður laugarveginn oft í jólastemmningunni. Föndra jólaskraut. Kaupa jólaskraut. Kaupa jólatré, skreyta jólatré. Kaupa þær jólagjafir sem að ég á eftir að kaupa. Pakka inn jólagjöfum. Fara í eins margar heimsóknir og ég get og bjóða eins oft og ég get heim í heitt súkkulaði og smákökur, og svo fullt fullt meira.
Ég hlakka allavega mikið til**
Ég elska jólin**

Nóg í bili, verð að halda áfram að greina mannslíkamann.
-BrynjA JólabarN
Engin athugasemd




